Unnur Stranda
Dagsetning
20. mars 2010
28.03.2008 10:26:18 / unnur

komin á annað tilverustig

Hæ er búin að færa mig eins og aðrir á annað tilverustig
það er http://unnur-stranda.blog.is/admin/blog/

bæó
Unnur

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 14:09:50 / unnur

SNJÓR,FROST,RIGGNIG,HLÁKA

 

Ég veit að ég á það til að vera svolítið öfgafull (það fylgir okkur sem erum af Ávíkurættinni ),en nú er ég búinn að fá nóg að vetri í bili:whut::whut:,það er ýmist rigning og hláka eða snjókomma og frost ,þannig að bílarnir bókstaflega frjósa fastir ,í morgun ætlaði ég ekki að komast af stað í vinnuna því bæði afturhjólin á vinnubílnum voru frosin föst :sog ég varð að berja felgurnar með sleggju eins ég veit ekki hvað og minnti helst  bílvirkan í spaugstofunni sem að ber allt til,en það tókst hjá mér,,ég veit ekki hvað fólk hefði haldið ef það séð til mín.Svo afrekaði ég það að fjúka útaf í veðrinu sem gekk á fyrir hálfum mánuði og þurfti að  fá aðstoð Björgunarsveitarinnar til að koma bílnum upp á veg aftur.Þannig að ég er búinn að fá nóg .....................:evil::evil:

Það er allt fínt að frétta hjá okkur hér  .Fannar er komin á Bolungarvík með bátinn hann eltir ýsuna þar sem hún veiðist ,ætlar að koma heim í kvöld í helgarfrí .:p

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 17:54:57 / unnur

Þorrablót og húllumhæ

Góðir hálsar................. Mikið voðalega er ég ánægð með að  hafa smá vetur ég er svo skrítin að ég þoli ekki  rok og  rigningu en finnst aftur á móti voða notalegt ef það snjóar og skefur svo komi smá skaflar,,þá lifna ég öll við, þó maður festi bílana og þurfi að moka þá upp þá er þetta einhver  yndislegur sjarmi sem mér finnst nauðsinlegur á vetrum .ætli þetta sé ekki einhver þrá eftir  gömlum tíma þegar maður var bókstaflega í snjóskafli allan veturinn að moka göng í hengjurnar ,stökkva ofan af Hjallinum ,Inda húsum eða Krossklettunum .ég held að þetta hafi verið alveg frábært  fyrir mann að þroskast á þessum afskekta stað,þó maður vildi ekki ala sín börn upp þar (svolítið strítið;).

Þá er þorrablótið hér í Grundarfirði nú um helgina ,það er alltaf voðalega gaman á þessum blótum ,heimtilbúin skemmtiatriði og svo er auðvitað ball á eftir ,það var forsala í gær og mér skilst að það hafi nánast selst upp ,fólk er farið  að þyrsta í  einhver skemmtilegheit ,Fannar kemur heim um helgina og ætlum við að skella okkur ,hún Elsa sem er að vinn hjá okkur í Snæþvotti er í skemmtinefndinni  svo við verðum að fara og sjá hana spreyta sig...

Jæja bið að heilsa ykkur sem nennið að kíkja hér inn ,þar sem ég er nú ekkert voðalega mikill penni ,þó ég segi sjál frá ..

 

kv.Unnur Pálína


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 11:26:27 / unnur

Á tónleika í London

Við Brynja Sif fengum óvænta fjölgun í húsið í gær er Eyþór og Harpa birtust í dyrunum það var voða gott að fá þau heim ,en þau fara aftur í dag . Það var mikil hamagangur í okkur Frænkunum Guðrúnu og Gíslínu í gær ,við ákváðum að skella okkur á tónleika í LONDON með Eagles  um páskana og þurftum við þá að fá miða finna flug ,finna hótel og hafðist þetta allt saman  hjá okkur og getum við nú  farið að lát okkur hlakka til,þetta veður æðislegt hjá okkur því við frænkur höfum aldrei farið saman erlendis  og hvað þá á tóleika með EAGLES.... Fannar er að mokfiska í Bíldudal  var með 9 tonn í gær og hefur verið með frá 5-6 tonn á dag síðan hann fór vestur eftir jól hann var búin að fá 53tonn í gær á 8 dögum það er ekki slæmt hjá kalli ( þetta er svoddan sjóari ..................)

Jæja hafið það svo gott í næstu vinnuviku

Bæó Unnur Pálína


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 20:08:56 / unnur

Hugleiðingar

Lífið gengur sinn vana gang hér í Grundó það er voðalega tómlegt hér ,hún Brynja litla barnið mitt  er 13ára í dag eins og mér finnst stutt síðan að við vorum á fæðingardeildinni að koma nýjum  einstaklingi í heiminn og  hlusta á útvarpið á milli hríða  um allar hörmungarnar sem dundu þessa nótt 1995 á Suðavík það er alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram og mér sem finnst ég alltaf vera 25 ,en þegar maður á orðið 20ára barn er kannski kominn tími til hugsa sinn gang ,og gera upp við sig hvað manni langar að gera í þessu lífi áður en maður verður gamall hrumur ,nei ég segi nú svona.Við mæðgur brunuðum suður á mánudag að hitta tannréttingarlækninn það er fast á fimm vikna fresti ,hún fékk spangir í ágúst en þetta gengur svo vel að hann sagði okkur að það væri farið að styttast í lok og vonandi verður það með vorinu,það er alltaf ágætt að skreppa í bæinn við gistum hjá Guðbjörgu systir það var voða fínt .                      

Jæja hafið það sem best

Kv Unnur Pálína


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 23:40:44 / unnur

allt til sölu hjá okkur

Halló Halló 

Jæja þá eru Við Brynja orðnar einar eftir í kotinu frá og með morgundeginum .Eyþór Rafn fer á morgun..

Við  Erum  búin að setja Snæþvott formlega á sölu og var hann auglýstur  í Skessuhorni í dag,en  það er blað sem fer um vesturland ,svo hittist svo skemmtilega á að í gær rakst inn úr dyrunum hjá mér gamall granni úr Hafnarfirði  hún Hrafnhildur hún bjó við hliðina á mér og hún er fasteignasali í dag og fannst okkur tilvalið að láta hana reyna selja fyrir okkur  svo hún myndaði allt í bak og fyrir bæði fyrirtækið og húsið,enda virtust bæjarbúar haf tekið vel eftir rímax bílnum og myndasmiðnum  því fólk  var svolítið að spyrja mig í dag hvor ég væri virkilega að fara að selja,en það er vonandi að það gerist fljótlega fyrst  við erum búin að ákveða þetta  .Það er annars svolítið skrítið að vera að fara í burt þegar öll fjölskyldan er komin í Grundó ,en það verður einhver að vera í slagtogi með Guðbjörgu í Hafnarfirðinum ,ef hún er ekki á leiðinni vestur líka ,en þá er líka gott að hafa einhvern í bænum sem hægt er að leggjast uppá þegar komið er í bæjarferðir.Jæja bið að heilsa ykkur öllum  

Kveðja Unnur Pálína


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 22:56:39 / unnur

Allt að verða Hverdagslegt aftur

Gleðilegt nýtt ár Þá er árið 2008 gengið í garð og voru áramótin hin bestu nema veðrið var ekki alveg að gera sig en þegar maður er í góðum hóp þá nennir maður ekki að rella yfir því.Stórfjölskyldan var saman komin heima hjá Mömmu og pabba þessi áramót,nema Sævar og hans fjölsk er farin að stækka það mikið að þau voru heima hjá sér en komu svo eftir skaup.Guðbjörg var líka fjarri góðu gamnni því hún var á morgunvakt á nýársdag.

Ég hef bara góðar  tilfinningar fyrir þessu ári sem er að byrja og á ég von á að það verði einhverjar breytingar hjá okkur í ár en þær koma bara í ljós ef verður .Það styttist í að fækki á heimilinu aftur Harpa Og Eyþór eru að fara í bæinn og Fannar fer eftir helgi á Bíldudal ,þá verðum við Brynja einar eftir í kotinu ásamt Spora ,ég held að það verði frekar einmannalegt þá ,en svon er þetta bara .jæja hafið það gott í bili

 .kv.unnurpálína

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 00:02:12 / unnur

Haft það gott um jólinn

Jæja þá eru jólin liðin með öllu því sem því fylgir.Búið að borða mikið sofa mikið sem er alveg æðislegt. Að geta verið í leti í heila 10,dagaÉg tók mér frí í dag og gær þannig að ég er búinn að vera í fríi frá föstudaginn 21.des  Svo ég byrja ekki að vinna fyrr en á miðvikudaginn næsta ,það er svo gott að vera í fríi heima hjá sér .Ég fékk auðvitað bókina þar sem vegurinn endar (reyndar fékk é tvær) og var ekki lengi að lesa hana þetta er fín bók og gaman að lesa hvað þessi sumur hans  í stóru –Ávík  hafa haft mikil áhrif á Hrafn  ..Á morgun ætlum við að bruna í Hafnarfjörðin í jólakaffi til fólksins hans Fannars það verður gaman að hitta þau í jólaskapinu . Jæja bið að heilsa ykkur Verið stillt á áramótunum..Kv Unnur

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 23:21:43 / unnur

JÓLAFRÍ

GLEÐILEG JÓL

JÓLAKVEÐJA UNNUR PÁLÍNA


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 23:14:05 / unnur

Jólin eru að koma (nanna)

Halló Halló Jæja  þá er nú að styttast í blessuð jólin og hlakkar mig mikið til . Starfsmenn Snæþvotts  sem telja 2 fastráðnir, brunuðu  í borgin með sýna ekta maka um helgina og héldu sýna  ársáhátíð. Við gistum á hótel Holti og höfðum það fínt.fórum á jólagleði hjá besta á föstudaginn og borðuðum svo 5rétta jólamatseðill á Holtinu á Laugardaginn og  nutum vel,ég er búinn að ætla að gera þetta lengi en alltaf dregist ...|Þá erum við búinn að taka ákvörðun um að setja Snæþvott á sölu og  vonumst við til að fá eitthver viðbrögð við því á nýju ári,þetta er orðið ágætt hjá okkur og tímabært að nýir ferskir aðilar taki við og haldi áfram að byggja upp fyrirtækið,ég held að ég sé orðin út brunnin  í því ..Annars er allt fínt að frétta af okkur ,Fannar á Bíldó Harpa í Hafnarfirði ,en fjölskyldan fer nú að sameinast um jólin .það verður notalegt .. Jólakveðja Unnur Pálína

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 21:44:41 / unnur

allt og ekkert

Halló Halló :P:P

Hér er allt fínt að frétta jólin nálgast óðum og maður verður að far að baka og skreyta hjá sér ,ég er ægilega mikið jólabarn og er með 11 stóra kassa af jólaskrauti niðri  í bílskúr sem ég verð að fara að sækja .sumum í fjölskyldunni finnst þetta óttalegt  bras í mér en ég er bara svona og dettur ekki hug að breyta því ,kannski eldist þetta af mér einhvern tíman  þetta er bara svo yndislegt þegar allt er komið upp .Annars er farið að vera meyra að gera í þvottahúsinu ,fólk er farið að huga að jólum með sparifötin sín,gluggatjöld og þessa yndislegu jóladúka sem eru sumir hverjir með matar leifunum síðan í fyrra (ef það er eitthvað sem mér finnst leiðinlegt í þessari vinnu þá eru það DÚKAR ) en mér hefur aldrei þótt leiðinlegt að vinna í þvottahúsi alla vega ekki þegar ég ræð,veit ekki hvort ég gæti unnið undir öðrum  ,við Fannar gátum allavega ekki unnið þar saman.,það getur ábyggilega verið strembið að fara vinna undir annarmanna  stjórn þegar maður er búinn vinna hjá sjálfum sér svona lengi (ég er samt alveg tilbúinn í það  er orðin leið á þessari bindingu sem felst í því að vera með fyrirtæki .London ferðin gekk bara mjög vel ,voða gaman mikið ráfað á  Oxford  korti aðeins hituð og ýmislegt skemmtilegt gert ,það komu allir voða ánægðir en þreyttir heim  því þegar maður fer svona ferðir þá er maður á labbi alla daga .. 

Jæja hafið það sem best bið að heilsa ykkur öllum..

Kv .Unnur Pálína

  

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 17:57:54 / unnur

Ekki alveg hætt að blogga

Jæja Komið þið nú sæl öll  Ég er ekki mjög dugleg við þetta var eiginlega búinn að ákveða að hætta þessu.en svo ákvað ég að setja inn svona smá . Það er allt gott að frétta af okkur .Fannar er núna á Bíldudal búinn að vera þar með bátinn síðan í september og kemur heim á 10daga fresti ,þetta er freka þreytandi heimils líf ,Harpa í Hafnarfirð og Eyþór hugsar sér til hreyfings eftir áramót þá Verðum við Brynja bara tvær eftir hér.Ég er ekki alveg að fíla það.Þannig að við verðum að fara að hugsa þetta uppá nýtt hvar er besta að halda heimili ,það er heldur ekki sérlega ódýrt að leigja í borginni. Nú á fimmtudaginn erum við fjölskyldan að skella okkur til London í 5 daga hlakk voða til ætlum að gera alveg helling .fara á tónleita  we will rock you Og eitthvað fleira .:P:P:P:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:17:30 / unnur

Munaðrnes

Jæja þá er hátíðarhelgin mikla liðin  og allt komið í réttar skorður.Þetta var mikil og góð skemmtun og allir glaðir og kátir eftir ,sem ég best veit

Það komu fullt að fólki til okkar Guðrún vinkona,Guðbjörg systir,Kristjana mákona og Einar,og Jakob og Guðmundur þetta var alveg frábær helgi (kannski aðeins of margir bjórar drukknir) en það skaðaði engan og allir sáttir .Harpa og Eyþór spiluðu á balli á föstudagskvöldið fyrir ungalingana með hljómsveit sem nokkrir krakkar stofnuðu og gekk það mjög vel hjá þeim,.Brynja var að syngja á Föstudaginn  og Laugardaginn niður á bryggju þannig að ég hlít að vera mjög stolt móðir yfir þessu öllu saman  .

:lol::lol::lol::lol::lol: En á morgun ætla ég að fara í frí og bruna norður á munaðarnes og vera í viku til 10 daga eftir veðri og hafa það gott (slappa svolítið af ) það er komin tími á það Fannar kemur svo frá Skagaströnd á fimmtudaginn Og Eyþór á Föstudaginn ,Harpa ætlar að skella sé á ball í árnesi og bauð Bekkjarsystur sinni með  þá er komið að því að ég feti í fótspor Mömmu sem skutlaði manni alltaf á böllin og náði í mann aftur eftir ball ,en svona er þetta lífið fer alltaf sama hringinn . Kveðja Unnur Pálína

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 00:31:43 / unnur

Grundarfjarðardagar.......

Halló Halló:  Þá er nú farið að styttast í hátíðarhelgi Grundarfjarðar .Og ég sem ætlaði ekkert að skreyta hjá mér nema að nota gamla dótið síðan í fyrra en svo missir maður sig alveg  í tómu skreytingar æði  og spáir í hvað sé hægt að gera  ,við Trish erum ansi góðar  saman við erum báðar í bláahverfinu ,Sævar og mamma og pabbi eru í gula hverfinu ,Hafrún í græna og Bryndís verður í rauða þegar hún verður búin að koma sér fyrir í húsinu sem þau eru að fara byggja .fyrir þá sem ekki vita þá er bænum skipt í fjóra liti og er þema í hverju hverfi og fólk missir sig alveg í skreytingum ,þetta er voða gaman .Svo er mikil hátíð á bænum sem nær hámarki á laugardagskvöldið þegar hverfin fjögur þramma í skrúðgöngu niður á höfn og mætast á  gatnamótum og labba í hala rófu á hátíðarsvæðið .þetta er mikil litadýrð ..

 

Brunaði suður á laugardaginn var,hún Tengdamamma var að halda upp á 75 áraafmælið ,hún á afmæli 23.júl, það var mjög gaman ,það er alltaf gaman að hitta fólkið hans Fannars ,skemmtilegt fólk:D:D:D,Veislan var haldið á jómfrúnni og fengum við danskt smurbrauð að hætti Jakobs sem er alveg ótrúlega gott ,(Þetta var haldið á Sunnudaginn svo ég fékk þetta fina kaffi á afmælisgainn minn)tengdan afþakkaði allar gjafir svo börn og makar gáfu henni Ragga Bjarna 8)8) í afmælisveisluna hann er bara ansi góður þó hann sé orðin 73 ára ,þræl skemmtilegur karl.hún var mjög ánægð með þetta uppátæki systkinna

  Jæja bið að heilsa ykkur 

Ogef þig eruð í vafa hvað á gera um helgina

KOMIÐ Í GRUNDARFJÖRР         

     Kv Unnur Pálína


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 15:58:46 / unnur

bloggarin mikli

 

 komið þið sæl................

Er ekki komin tími til að koma eitt hverju frá sér.

  Það er allt fínt að frétta af okkur ,búið að vera heilmikið streð í vinnunni ,margir í frí en þetta líður allt og bráðum kemst ég í frí .:P:P:lol::o

Ég tók reyndar heila fjóra daga um daginn í frí og brunaði að sjálfsögðu beint heim á Munaðarnes í sæluna (það var reyndar svolítið svalt ),en Pabbi ég og Guðbjörg afrekuðum samt ýmislegt  við hreinsuðum túnflötinn af öllum rekavið,Svo fórum við Guðbjörg á sexhjóli sem hann Raggi frændi á( verulega skemtilegt farartæki )og hreinsuðum fjörurnar í kring um bæinn af járnardrasli og öðru sem safnast hafði upp í gegnum árinn og er nú allt annað að horfa yfir bæinn .Svo stendur til að fara í vinnuferð um mánaðarmótin að skipta um gafl í húsinu og ýmislegt  fleira.

 Við erum bara búin að fara í eina útilegu í sumar sem er nú frekar dapurt fórum í fossatún það er fínt tjaldstæði en ég er meira fyrir lítil og  óskipulagðari tjaldstæði Þá er yfirleitt meira næði ekki eitthver ættarmót eða hópar í stuði  og halda fyrir manni vöku ,svona gamalli konunni:S:S,,,,,.

Fannar er nánast fluttur í nýja bátinn sinn kemur, heim á hálfsmánaðarlega sem mér finnst ekkert sérlega skemmtilegt en það er ekki allt eins og maður vill hafa það,en það gengur alveg ágætlega hjá honum .Svo er það með ættarmótið .þetta er alveg ferlegt að  komast ekki en þá eru Grundarfjarðardagarnir og það er útséð með að fara burt þegar þeir skella á unglingarnir  Neita 8| (enda skil ég það að þeim langi ekki á ættarmót það er ósköp lítið fyrir þau að gera þar ) en ég  stefni þá bara á næst eftir 3ár þá verð ég orðin meira sjálfráða aftur .

 Jæja bið að heilsa

Unnur Pálína   

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 3 apríl